Gæsadalur í Vaðlaheiði. Haustlitaferð
DAGS
Kl.
10-14
BROTTFÖR Kl.
10
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
1-2 skór
12. september, laugardagur
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Una Þ. Sigurðardóttir
Gengið frá bílastæðinu efst á Víkurskarði og norður Gæsadal að Gæsagili. Sama leið farin til baka.
Vegalend alls 10–15 km. Gönguhækkun: 230 m.
Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

